Að mörgu þarf að huga þegar kaup eða sala fyrirtækja er annars vegar, allt frá gerð tilboðsskilmála, fjármögnunarsamninga og áreiðanleikakannana yfir í gerð kaupsamninga, veðsamninga og hluthafasamkomulaga. Eftir atvikum verður jafnframt að tryggja að ákvarðanir um kaup eða sölu séu teknar af bærum stjórnareiningum félaga með formlegum hætti. Þá má ekki vanmeta skattalegar afleiðingar sem leiða gjarnan af viðskiptum með hluti í félögum. Iðulega fylgja umtalsverðir hagsmunir slíkum viðskiptum og verður fagleg ráðgjöf því seint ofmetin.
Sérfræðingar LOCAL lögmanna hafa ekki aðeins viðamikla þekkingu og reynslu af verkefnum á sviði félagaréttar og fjármögnun fyrirtækja heldur einnig öðrum réttarsviðum sem ávallt tengjast kaupum og sölu fyrirtækja eins og skattarétti og samningarétti. Þá býr stofan yfir öflugu tengslaneti við fulltrúa lánastofnana og aðra fjármögnunaraðila sem nýtist viðskiptavinum okkar. Við veitum því heildstæða ráðgjöf um hvers kyns álitaefni sem viðkoma kaupum og sölu fyrirtækja og leggjum okkur fram við að tryggja hagsmuni okkar viðskiptavina í hvívetna.
Lögmenn okkar hafa komið að stórum samningum um sölu fyrirtækja þar sem við önnumst m.a., fyrir hönd okkar viðskiptavina, samningaviðræður við gagnaðila og alla skjalagerð til lúkningar viðskiptum. Einnig framkvæmum við lögfræðilegar áreiðanleikakannanir í aðdraganda viðskipta þar sem lagaleg staða félags er tekin út með skipulögðum hætti.
Ráðgjöf okkar varðandi kaup og sölu fyrirtækja felst meðal annars í:
- gerð tilboðsskilmála
- yfirferð og val á fjármögnunarkostum og samskipti við lánveitendur
- framkvæmd lagalegrar áreiðanleikakönnunar
- aðstoð með að tryggja lögmæta ákvarðanatöku innan félaga um viðskipti
- samningaviðræður og skjalagerð
- gerð hluthafasamkomulaga
- tilkynningar til opinberra aðila