Erfðaskrá er formbundinn skriflegur löggerningur um hinsta vilja einstaklings. Hver sem orðinn er 18 ára og telst andlega heill getur ráðstafað eignum sínum eftir andlát með erfðaskrá.
Hverju má ráðstafa með erfðaskrá?
Erfðaskrá getur tekið til allra eigna einstaklings ef hvorki er um eftirlifandi maka í hjúskap eða börn að ræða. Sé um maka eða börn að ræða er réttur einstaklings takmarkaður við rétt til að ráðstafa eignum sínum í erfðaskrá sem nemur þriðjung af heildareignum.
Af hverju að gera erfðaskrá?
Ástæður fyrir því geta verið margar og leysa oft áhyggjur þess sem erfðaskrá gerir.
Taka má dæmi um hjón, þar sem um er að ræða eitt barn eða fleiri sem ekki eru sameiginleg, sem geta tryggt rétt sinn til setu í óskiptu búi með því að kveða á um það í erfðaskrá. Sama á við standi vilji einstaklings til að veita öðrum en líffræðilegu barni sínu og maka arfsrétt, svo sem stjúpbarni. Í sumum tilfellum vilja einstaklingar enn fremur kveða á um að tiltekin eign verði séreign barna sinna við arftöku. Sem dæmi um slíkt má nefna að kveðið sé á um það í erfðaskrá að sumarbústaður fjölskyldunnar skuli vera séreign barnanna eftir andlát en færist ekki jafnframt á hendi tengdabarna. Enn fremur gæti verið kveðið á um að sumarbústaðurinn færi til ákveðins barns, en aðrar eignir til hinna barnanna.
Með gerð erfðaskrár er hægt að ná fram hinum hinsta vilja og um leið takmarka árekstra í kjölfar andláts. Erfðaskrá er nauðsynleg til þess og skal erfðaskráin uppfylla ákveðnar formkröfur. Einföld yfirlýsing hins látna í votta viðurvist nægir ekki.
Strangar reglur gilda um hvernig á að standa að vottun erfðaskráa. Hún kann að vera metin ógild ef ekki er farið eftir þeim reglum og einstaklingi sem vill gera erfðaskrá ráðlagt að leita til sérfræðings við gerð hennar. Hægt er að breyta erfðaskrá eða auka við hana. Ef fleiri erfðaskrár eru til staðar og allar teljast gildar, samkvæmt lögum, er það sú yngsta sem fara skal eftir, þ.e. ef þær stangast á.