Sameiginleg börn

Hafi hinn látni verið í hjúskap við andlát getur eftirlifandi maki óskað eftir því að sitja í óskiptu búi.

Sambúðarmaki á ekki rétt til setu í óskiptu búi samkvæmt lögum og getur ekki fengið því framgengt með erfðaskrá. Slíkur réttur, seta í óskiptu búi, er aðeins til þeirra sem hafa gengið í hjónaband. Hafi hjón aðeins átt sameiginleg börn er réttur hins langlífari maka skilyrðislaus. Sé skiptum dánarbús lokið með því að eftirlifandi maki fær leyfi til setu í óskiptu búi, fer eftirlifandi maki einn með ráðstöfunarrétt yfir búinu.

Til að ganga frá setu í hinu óskipta búi þarf aðeins að fylla út eyðublað og skila til sýslumanns – eyðublaðið má finna hér.

Sýslumaður staðfestir leyfið og gefur út leyfisbréf sem eftirlifandi maki getur svo sýnt hjá bankastofnunum og sýslumanni til að færa eignir sem voru skráðar á hinn skammlífari maka yfir á hinn langlífari.

Það athugast að maka er heimilt að kveða svo á um í erfðaskrá að hinn langlífari skuli ekki eiga rétt til setu í óskiptu búi, sbr. 7. gr. erfðalaga nr. 8/1962, og ber þá að synja um rétt til setu í óskiptu búi. Frumrit erfðaskrár verður að vera fyrir hendi.

Eitt barn eða fleiri ekki sameiginleg

Hafi hinn látni átt barn/börn sem ekki eru börn langlífari maka, er rétturinn til setu í óskiptu búi háður samþykki þeirra barna sem eru ekki sameiginleg.

Hjón geta þó komið í veg fyrir að leita þurfi samþykkis þess barns/þeirra barna sem ekki eru sameiginleg með því að gera erfðaskrá. Í erfðaskránni væri þá kveðið á um rétt langlífari makans til setu í óskiptu búi og þarf þá að framvísa frumriti erfðaskrárinnar þegar skammlífari maki er fallinn frá.

Sé erfðaskrá ekki til að dreifa á þó langlífari maki rétt til setu í óskiptu búi ef hann fer með forsjá eða lögráð ófjárráða stjúpbarna eða niðja sinna, ella þarf hann samþykki forsjárforeldris eða lögráðamanns barnanna.

Hvað merkir það að sitja í óskiptu búi?

Að sitja í óskiptu búi merkir að eignum og skuldum hins látna verður ekki skipt milli erfingja að svo stöddu. Eftirlifandi maki tekur við eignunum og heldur áfram að halda utan um eignirnar, eins og staðan væri óbreytt. Sama gildir um skuldirnar. Hinn eftirlifandi maki hefur þannig einn ráðstöfunarrétt yfir öllum eignum og geta þær hvort sem er rýrnað eða aukist á meðan seta í óskiptu búi varir. Hinn eftirlifandi maki ber þannig jafnframt ábyrgð á öllum skuldum dánarbúsins.

Börn hins látna eiga ekki tilkall til ákveðinna eigna og/eða fjármuna. Þau eiga einungis tilkall til ákveðins hlutfalls, miðað við arfshlutdeild, af heildareignum dánarbúsins, þegar dánarbú hins skammlífara er gert upp við andlát hins langlífara maka.

Ef eftirlifandi maki situr í óskiptu búi, hvenær verður dánarbú hins skammlífara gert upp?

Hinn langlífari maki má sitja í óskiptu búi til dánardags og þá fyrst verður dánarbú hins skammlífara gert upp við andlát hins langlífara. Hinn langlífari maki verður að gæta þess þegar hann situr í óskiptu búi að fara eðlilega með fjármuni og eignir dánarbúsins, því skv. 17. gr. erfðalaga er hægt að krefjast þess að búi verði skipt ef um óhæfilega fjárstjórn maka er að ræða. Dómafordæmi hafa sýnt að mikið þarf til að koma til að maki verði sviptur réttinum til að sitja í óskiptu búi.

Langlífari maka er ekki skylt að sitja í óskiptu búi til dánardags. Langlífara maka er ávallt heimilt að gera upp hið óskipta bú, hvort sem er við eitt barn eða fleiri. Algengt er að langlífari maki geri upp við börn hins skammlífari maka, en sitji áfram í óskiptu búi gagnvart sameiginlegum börnum sínum.

Heimild til setu í óskiptu búi fellur þó niður ef hinn langlífari maki ákveður að ganga í hjónaband að nýju og ber þá að gera upp arf eftir hinn skammlífari til allra barna hins skammlífara, þ.m.t. sameiginleg börn skammlífari og eftirlifandi maka.
Hafi langlífari maki setið í óskiptu búi með ófjárráða stjúpniðjum, getur stjúpniðji krafist skipta innan þriggja mánaða frá því að hann öðlaðist fjárræði. Hafi hann ekki gert það innan þess tímaramma, getur hann gert það síðar með árs fyrirvara, sbr. 14. gr. erfðalaga.

Ef ákveðin eign var séreign hins skammlífara samkvæmt kaupmála, fer séreignin þá inn í hið óskipta bú?

Séreign fellur ekki undir hið óskipta bú nema sérstaklega hafi verið kveðið svo á um í kaupmálanum að við andlát þess sem á séreignina skuli fara með eignina sem hjúskapareign, sbr. 11. gr. erfðalaga.

Hafi svo ekki verið kveðið á um í kaupmála, ber að skipta séreigninni á milli erfingja á þann hátt að maki erfir þriðjung og börn hins látna skipta með sér tveimur þriðju í samræmi við fjölda þeirra.

Fyrir andlát

Skyldubundinn erfðarétt eiga niðjar (börn) hins látna og makar sem hafa gengið í hjónaband. Sé ekki um skyldubundinn erfðarétt að ræða kemur til frændsemi samkvæmt lögum, þ.e. foreldrar, systkini og systkini foreldra sem kallast lögerfingjar.

Ef engum skylduerfingjum, lögerfingjum eða erfðaskrá er til að dreifa þá renna eignir hins látna til ríkissjóðs.

Ekki er um gagnkvæman rétt sambúðarmaka til erfða. Hvort um sig getur þó kveðið á um slíka erfð í erfðaskrá og í slíku tilfelli þarf sambúðarmaki ekki að greiða erfðafjárskatt, sbr. 2. gr. laga um erfðafjárskatt.

Stjúpbörn og fósturbörn njóta ekki erfðaréttar frá stjúpforeldri eða fósturforeldri. Hins vegar er hægt að ráðstafa arfi til stjúpbarns eða fósturbarns með því að kveða á um slíkt í erfðaskrá.

Erfðaskrá er formbundinn skriflegur löggerningur um hinsta vilja einstaklings. Hver sem orðinn er 18 ára og telst andlega heill getur ráðstafað eignum sínum eftir andlát með erfðaskrá.

Hverju má ráðstafa með erfðaskrá?

Erfðaskrá getur tekið til allra eigna einstaklings ef hvorki er um eftirlifandi maka í hjúskap eða börn að ræða. Sé um maka eða börn að ræða er réttur einstaklings takmarkaður við rétt til að ráðstafa eignum sínum í erfðaskrá sem nemur þriðjung af heildareignum.

Af hverju að gera erfðaskrá?

Ástæður fyrir því geta verið margar og leysa oft áhyggjur þess sem erfðaskrá gerir.

Lesa meira

Öllum er heimilt að kveða á um erfðarétt í erfðaskrá og kallast slíkt bréferfð.

Erfðaskrá getur tekið til allra eigna einstaklings ef hvorki er um eftirlifandi maka í hjúskap eða börn að ræða.

Sé um maka eða börn að ræða er réttur einstaklings takmarkaður við rétt til að ráðstafa eignum sínum í erfðaskrá sem nemur þriðjung af heildareignunum.

Fyrirframgreiddur arfur er arfur sem einstaklingur á lífi greiðir erfingja sínum. Ganga þarf frá honum eftir atvikum með erfðaskrá, en ávallt með erfðafjárskýrslu og greiðslu erfðafjárskatts. Erfðafjárskattur er 10% af því sem greitt er sem fyrirframgreiddur arfur.

Sé sýslumanni ekki gerð grein fyrir fyrirframgreiddum arfi er um gjöf að ræða til viðkomandi aðila sem skattlögð yrði með tekjuskatti sem er töluvert hærri en erfðafjárskattur, sbr. 1. mgr. 66. gr. laga um tekjuskatt nr. 90/2003.

Skila þarf erfðafjárskýrslu til að hægt sé að ljúka uppgjöri dánarbús gagnvart sýslumanni, bæði í tengslum við einka- og opinber skipti. Slíkri skýrslu er ekki skilað ef um eignalaust bú er að ræða, eða ef langlífari maki sest í óskipt bú.

Erfðafjárskattur er lagður á í samræmi við það sem fram kemur í erfðafjárskýrslu.

Erfðafjárskattur greiðist aðeins af þeirri fjárhæð sem er umfram skattfrelsismörk og njóta erfingjar skattfrelsis í hlutfalli við arf sinn. Erfðafjárskattur er 10%, Skattfrelsismörk breytast í samræmi við vísitölu neysluverðs ár hvert. Skattfrelsismörkin árið 2026 eru kr. 6.789.790.

Eftir andlát

Við andlát tekur dánarbú við skyldum og réttindum hins látna. Dánarbú er sérstakur lögaðili og skal fara eftir ákveðnum reglum við uppgjör þess.

Við andlát er það skylda erfingja að skipta eignum hins látna. Sýslumanni skal tilkynnt með formlegum hætti með hvaða hætti skiptin fara fram eigi síðar en innan fjögurra mánaða frá andláti.

Skipti dánarbús geta farið fram með eftirfarandi hætti:

  • Eftirlifandi maki fær leyfi til setu í óskiptu búi.
  • Einkaskipti á dánarbúinu fara fram.
  • Eignir duga aðeins fyrir útfararkostnaði og búið þar með lýst eignalaust.
  • Opinber skipti á dánarbúinu fara fram.

Á meðan ráðstöfun á eignum dánarbús hafa ekki farið fram eru eignir hins látna í raun frystar. Aðeins sýslumaður fer með ráðstöfunarrétt yfir eignum, þ.m.t. innstæðum á bankareikningum hins látna.

Munurinn á séreign og hjúskapareign þegar kemur til uppgjörs dánarbús

Þegar um hjúskapareign er að ræða, þá á hvor maki um sig 50% hlut í viðkomandi eign. Við uppgjör dánarbús skammlífara maka, þá er aðeins 50% viðkomandi eignar hluti af uppgjöri dánarbúsins því eftirlifandi maki á 50% hlut í viðkomandi eign. Eftirlifandi maki erfir því þriðjung af 50% hlut og á því í raun 67% af heildareigninni.

Ef um séreign skammlífari maka er hins vegar að ræða, þá á eftirlifandi maki ekki 50% hlut í eigninni. Eignin í heild sinni er því undir skiptum og eftirlifandi maki erfir þriðjung af 100% hlut viðkomandi eignar og börnin tvo þriðju af 100% hlut viðkomandi eignar.

Sameiginleg börn

Hafi hinn látni verið í hjúskap við andlát getur eftirlifandi maki óskað eftir því að sitja í óskiptu búi.

Sambúðarmaki á ekki rétt til setu í óskiptu búi samkvæmt lögum og getur ekki fengið því framgengt með erfðaskrá. Slíkur réttur, seta í óskiptu búi, er aðeins til þeirra sem hafa gengið í hjónaband. Hafi hjón aðeins átt sameiginleg börn er réttur hins langlífari maka skilyrðislaus. Sé skiptum dánarbús lokið með því að eftirlifandi maki fær leyfi til setu í óskiptu búi, fer eftirlifandi maki einn með ráðstöfunarrétt yfir búinu.

Til að ganga frá setu í hinu óskipta búi þarf aðeins að fylla út eyðublað og skila til sýslumanns – eyðublaðið má finna hér.

Lesa meira

Með einkaskiptum er átt við það að börn, og eftir atvikum maki, og aðrir erfingjar samkvæmt erfðaskrá ef við á, óska eftir því við viðkomandi sýslumann að þeir ætli sjálfir að bera ábyrgð á skiptum á dánarbúinu og beri þannig ábyrgð á öllum skuldbindingum þess. Erfingjar bera þar með alla ábyrgð á skuldum hins látna, jafnt þeim skuldum sem kunnugt er um og þeim sem ekki eru þekktar við andlát viðkomandi.

Erfingjar sjá sjálfir um skiptingu eigna búsins og gera upp skuldir þess. Erfingjar geta því selt eignir þess, til dæmis fasteignir og tekið út af bankareikningum hins látna, enda miðast uppgjör erfðafjárskatts við stöðu eigna á dánardegi. Erfingjarnir eiga að gera þetta í sameiningu og vera sammála um hvaða eignir komi í hlut hvers og eins erfingja.

Hægt er að veita þriðja aðila umboð til að halda utan um skiptin fyrir hönd erfingjanna.

Til að ljúka skiptum formlega þarf að upplýsa um uppgjör á dánarbúinu með því að skila erfðafjárskýrslu til viðkomandi sýslumanns og greiða erfðafjárskatt. Ef erfingjar eru ekki allir að fá jafnt og sömu eignirnar, t.d. einn erfingi fær fasteign í sinni hlut en aðrir erfingjar meiri pening í staðinn, þarf að útbúa sérstaka skýrslu, svokallaða einkaskiptagerð, sem gerir grein fyrir þessu og þurfa allir erfingjar að undirrita hana. Ef eignir eru óverulegar, þá getur viðkomandi sýslumaður ákveðið að ekki sé nauðsynlegt að gera einkaskiptagerð ef nægar upplýsingar koma fram í erfðafjárskýrslu.

Ekkert eyðublað er fyrir einkaskiptagerð, en sýslumaður hefur gefið út staðlað form erfðafjárskýrslunnar.

Skila þarf erfðafjárskýrslu til að hægt sé að ljúka uppgjöri dánarbús gagnvart sýslumanni, bæði í tengslum við einka- og opinber skipti. Slíkri skýrslu er ekki skilað ef um eignalaust bú er að ræða, eða ef langlífari maki sest í óskipt bú.

Erfðafjárskattur er lagður á í samræmi við það sem fram kemur í erfðafjárskýrslu.

Erfðafjárskattur greiðist aðeins af þeirri fjárhæð sem er umfram skattfrelsismörk og njóta erfingjar skattfrelsis í hlutfalli við arf sinn. Erfðafjárskattur er 10%, Skattfrelsismörk breytast í samræmi við vísitölu neysluverðs ár hvert. Skattfrelsismörkin árið 2026 eru kr. 6.789.790.

Lesa meira

XX Erfingjar geta krafist opinberra skipta á dánarbúi vilji þeir ekki gangast undir það að bera ábyrgð á öllum skuldbindingum búsins. Erfingjar geta líka farið þessa leið ef ágreiningur er á milli erfingja og líklegt þykir að erfitt verði að komast að samkomulagi um skipti búsins. Sýslumaður getur að auki krafist opinberra skipta hafi erfingjar ekki brugðist við áskorun sýslumanns um að hefjast handa við skipti. Hver erfingi fyrir sig á rétt á því að krefjast þess að opinber skipti fari fram og nægir að einn þeirra fari fram á það.

Til að krefjast opinberra skipta skal senda beiðni til héraðsdómstóls þar sem hinn látni átti síðast lögheimili. Beiðnin er svo tekin fyrir í sérstöku réttarhaldi og í framhaldinu kveðinn upp úrskurður og dánarbúinu skipaður sérstakur skiptastjóri. Skiptastjóri ber ábyrgð á að framkvæma skiptin og er kostnaður af störfum hans greiddur af eignum dánarbúsins. Skiptastjóri hefur skiptin á að boða erfingja á sinn fund.

Ef erfingjar lýsa því yfir að þeir taki ekki ábyrgð á skuldbindingum búsins gefur skiptastjóri út innköllun sem birt er tvisvar sinnum í Lögbirtingablaði. Í innköllun er skorað á þá sem telja sig eiga kröfur á hendur búinu að lýsa kröfum sínum fyrir skiptastjóra innan tveggja mánaða frá því að innköllunin birtist í fyrra skiptið.

Þegar skiptastjóri hefur lokið við að greiða allar kröfur á hendur dánarbúi eða tekið frá fjármuni til þess að mæta þeim getur hann lokið opinberum skiptum með úthlutun til erfingja. Sé ágreiningur fyrir hendi getur skiptastjóri þurft að vísa ágreiningi erfingja til héraðsdóms til úrlausnar.

Hafa þarf í huga að hafi erfingjar ekki lýst yfir ábyrgð á skuldbindingum dánarbús við opinber skipti og í ljós kemur eftir lok kröfulýsingarfrests að eignir þess nægja ekki fyrir skuldum, verður úthlutað úr dánarbúinu upp í kröfur eins og um þrotabú væri að ræða.

Hægt er að lýsa því yfir gagnvart sýslumanni að hinn látni hafi ekki átt neina fjármuni eða aðrar eignir umfram kostnað við útför og er þá hægt að ljúka skiptum strax á þeim grundvelli að búið sé eignalaust.

Við andlát fellur til kostnaður við útför hins látna. Heimilt er draga þann kostnað frá þeim eignum sem koma til arfsúthlutunnar. Því er mikilvægt að halda utan um kvittanir vegna útlagðs kostnaðar við útför hins látna.

Sýslumaður hefur gefið út staðlað form sem hægt er að fylla inn í upplýsingar um útfararkostnað sem fylgir þá með erfðafjárskýrslunni.

Aðeins er heimilt að tilgreina kostnað vegna þess einstaklings sem útförin á við um, þ.e. kostnaður vegna skammlífari maka kemur ekki til frádráttar nema um ógreidda kröfu sé að ræða. Þannig að sé óskipt bú gert upp þegar hinn langlífari maki er enn á lífi, eða við andlát hins langlífari maka, er ekki hægt að draga frá kostnað vegna útfarar hins skammlífari maka.