Verkefni LOCAL lögmanna á sviði verktakaréttar eru fjölmörg og fer hópur viðskiptavina á því sviði ört stækkandi. Við veitum bæði verktökum og verkkaupum alhliða ráðgjöf á öllum stigum máls, allt frá liðsinni í samningaviðræðum á upphafsstigi, gerð verk- og fjármögnunarsamninga og úrlausn ágreiningsmála, eftir atvikum fyrir dómstólum.
Auk víðtækrar þekkingar á lagaumhverfi verktakaréttar býr stofan að öflugum tengingum við fjármögnunaraðila sem gerir okkur kleift að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu.
Fagleg og skilvirk ráðgjöf okkar er ekki síst mikilvæg á sviði verktakaréttar þar sem undirliggjandi hagsmunir eru gjarnan verulegir og skjót viðbrögð oftast nauðsynleg vegna strangra tímafresta sem einkenna þetta lagaumhverfi.
Jafnframt er brýnt að verktakar hafi í gildi fullnægjandi vátryggingar til að verja reksturinn fyrir hugsanlegum áföllum sem annars geta reynst dýrkeypt. Við veitum aðstoð við val á viðeigandi vátryggingum og sinnum hagsmunagæslu ef ágreiningur kann að rísa um réttindi úr vátryggingum.
Fasteignir
LOCAL lögmenn hafa um langt skeið sinnt fjölbreyttum verkefnum er varða fasteignir. Meðal verkefna á því sviði eru úrlausn gallamála í fasteignum, hvort sem er með samningum eða fyrir dómstólum, gerð kaup- og leigusamninga og úttektir á húsnæði á grundvelli húsaleigulaga. Við búum að margra ára reynslu af rekstri flókinna dómsmála og öflunar matsgerða fyrir dómi vegna fasteignagallamála. Þekking okkar á þessum málaflokki og vönduð vinnubrögð tryggja örugga hagsmunagæslu fyrir okkar viðskiptavini.
Fasteignagalli – réttur kaupanda og úrræði
Fasteignakaup er stór fjárfesting fyrir flesta enda miklir fjármunir í húfi. Það getur því valdið kaupendum verulegu fjártjóni ef nýkeypt fasteign reynist haldin galla. Við slíkar aðstæður er mikilvægt að bregðast rétt við án tafar svo hugsanlegur réttur vegna gallans glatist ekki, sem og til að auka líkur á að ná sem hagkvæmustu niðurstöðu.
Leiki grunur á að fasteign sé haldin ágalla mælum við sterklega með að leitað sé faglegrar ráðgjafar um réttarstöðu og möguleg úrræði. Það veitir nefnilega ekki alltaf rétt til afsláttar eða annarra úrræða þótt vankantar séu á fasteign eða ef ástand hennar samræmist ekki væntingum kaupanda.
Hvernig aðstoðum við þig?
Fasteignagallamál eru oftast flókin og krefjast faglegrar meðferðar frá upphafi. LOCAL lögmenn hafa mikla reynslu af úrlausn mála sem snerta galla í fasteignum, hvort sem er fyrir kaupendur eða seljendur. Við veitum faglega og skýra ráðgjöf við mat á réttarstöðu aðila vegna galla, önnumst sáttaviðræður og aðstoðum með önnur nauðsynleg úrræði til að tryggja hagsmuni okkar viðskiptavina.