Hafa þarf í huga að strangar reglur gilda um tilkynningarskyldu, tímafresti og fyrningu krafna í gallamálum. Ef í ljós kemur að fasteign er haldin ágalla er mjög mikilvægt að kaupandi tilkynni seljanda skriflega um gallann við fyrsta tækifæri. Samkvæmt lögum um fasteignakaup ber að senda tilkynningu um galla innan sanngjarns frests frá því kaupandi varð hans var, en sá frestur spannar aðeins nokkra mánuði miðað við dómaframkvæmd. Verði misbrestur á þessu getur kaupandi glatað rétti til að bera gallann fyrir sig sökum tómlætis.
Tilkynningu um galla verður að beina að seljanda sjálfum. Dómstólar hafa slegið föstu að ekki nægi að upplýsa aðeins viðkomandi fasteignasala.
Ennfremur verður að hafa hugfast að kröfur vegna fasteignagalla fyrnast að jafnaði á fjórum árum frá afhendingu eignarinnar. Frá þessu geta verið undantekningar en kaupendum er þó eindregið ráðlagt að leita lögmannsaðstoðar tímanlega ef þeir telja sig eiga rétt vegna slíkra ágalla.
Fyrningu kröfu vegna galla er slitið með málshöfðun gegn seljanda fyrir dómi eða ef hann viðurkennir kröfuna með sannanlegum hætti.
Hvernig aðstoðum við þig?
Fasteignagallamál eru oftast flókin og krefjast faglegrar meðferðar frá upphafi. LOCAL lögmenn hafa mikla reynslu af úrlausn mála sem snerta galla í fasteignum, hvort sem er fyrir kaupendur eða seljendur. Við veitum faglega og skýra ráðgjöf við mat á réttarstöðu aðila vegna galla, önnumst sáttaviðræður og aðstoðum með önnur nauðsynleg úrræði til að tryggja hagsmuni okkar viðskiptavina.