Í gegnum árin sjáum við reglulega sömu mistökin í fasteignagallamálum sem torvelda stöðu kaupenda. Með þeim algengari sem ber að varast eru:
- Of sein tilkynning um galla: Kaupendur bíða of lengi með að tilkynna seljanda um ágalla í fasteign og að þeir ætli að bera gallann fyrir sig.
- Viðgerðir án sönnunar um galla: Sönnunarbyrðin um að fasteign hafi verið haldin ágalla við afhendingu hvílir á kaupanda. Stundum hefur kaupandi ráðist í viðgerðir á galla áður en viðhlítandi sönnun er tryggð um tilvist og umfang gallans – til dæmis með öflun matsgerðar. Við slíkar aðstæður getur reynst mjög erfitt að sanna gallann og tryggja rétt kaupanda.
- Krafan fyrnist: Kaupendur aðhafast ekki með að leita réttar síns vegna galla fyrr en krafa þeirra gegn seljanda er þegar fyrnd.
Hvernig aðstoðum við þig?
Fasteignagallamál eru oftast flókin og krefjast faglegrar meðferðar frá upphafi. LOCAL lögmenn hafa mikla reynslu af úrlausn mála sem snerta galla í fasteignum, hvort sem er fyrir kaupendur eða seljendur. Við veitum faglega og skýra ráðgjöf við mat á réttarstöðu aðila vegna galla, önnumst sáttaviðræður og aðstoðum með önnur nauðsynleg úrræði til að tryggja hagsmuni okkar viðskiptavina.