Svar við því hvort fasteign sé haldin galla í skilningi laga sem seljandi ber ábyrgð á ræðst af heildarmati ýmissa þátta eins og eðli og umfangi gallans, atvikum í aðdraganda kaupa og upplýsingum sem seljandi veitti kaupanda um fasteignina.

Almenna reglan er sú að notuð fasteign geti aðeins talist gölluð að kostnaður við úrbætur gallans nemi að lágmarki 10% af kaupverði hennar þannig að svokölluðum gallaþröskuldi sé náð. Minniháttar frávik í gæðum og eðlilegt slit á notaðri fasteign eru því ekki ágalli samkvæmt reglum fasteignakauparéttar sem veitir rétt til vanefndaúrræða.

Frá þessu eru tvær undantekningar. Annars vegar þegar um er að ræða nýbyggingar eða nýlegar fasteignir, enda má kaupandi þá gera auknar kröfur um að fasteignin sé gallalaus.

Hins vegar á reglan um gallaþröskuld ekki við ef seljandi hefur veitt kaupanda rangar, ófullnægjandi eða villandi upplýsingar um fasteignina eða leynt upplýsingum sem máli skipta um ástand hennar – s.s. leka frá þaki eða ágreining við nágranna. Við slíkar aðstæður getur kaupandi átt rétt til vanefndaúrræða eins og afsláttar eða skaðabóta jafnvel þótt umfang gallans sé undir 10% viðmiði.

Kaupandi ber sönnunarbyrði fyrir því að fasteign hafi verið haldin galla fyrir afhendingu og að honum hafi ekki mátt vera gallinn ljós við skoðun í aðdraganda kaupa.

Svar við því hvort fasteign sé haldin galla í skilningi laga sem seljandi ber ábyrgð á ræðst af heildarmati ýmissa þátta eins og eðli og umfangi gallans, atvikum í aðdraganda kaupa og upplýsingum sem seljandi veitti kaupanda um fasteignina.

Almenna reglan er sú að notuð fasteign geti aðeins talist gölluð að kostnaður við úrbætur gallans nemi að lágmarki 10% af kaupverði hennar þannig að svokölluðum gallaþröskuldi sé náð. Minniháttar frávik í gæðum og eðlilegt slit á notaðri fasteign eru því ekki ágalli samkvæmt reglum fasteignakauparéttar sem veitir rétt til vanefndaúrræða.

Lesa meira

Ef í ljós kemur að fasteign er haldin galla kann kaupandi eftir atvikum að geta beitt eftirfarandi vanefndaúrræðum gagnvart seljanda til að gæta sinna hagsmuna.

Hvaða leið er líklegust til árangurs fer eftir aðstæðum í hverju máli. Við greinum réttarstöðu þína og ráðleggjum með næstu skref.

Lesa meira

Hafa þarf í huga að strangar reglur gilda um tilkynningarskyldu, tímafresti og fyrningu krafna í gallamálum. Ef í ljós kemur að fasteign er haldin ágalla er mjög mikilvægt að kaupandi tilkynni seljanda skriflega um gallann við fyrsta tækifæri. Samkvæmt lögum um fasteignakaup ber að senda tilkynningu um galla innan sanngjarns frests frá því kaupandi varð hans var, en sá frestur spannar aðeins nokkra mánuði miðað við dómaframkvæmd. Verði misbrestur á þessu getur kaupandi glatað rétti til að bera gallann fyrir sig sökum tómlætis.

Lesa meira

Í gegnum árin sjáum við reglulega sömu mistökin í fasteignagallamálum sem torvelda stöðu kaupenda. Með þeim algengari sem ber að varast eru:

Lesa meira

Hvernig aðstoðum við þig?

Fasteignagallamál eru oftast flókin og krefjast faglegrar meðferðar frá upphafi. LOCAL lögmenn hafa mikla reynslu af úrlausn mála sem snerta galla í fasteignum, hvort sem er fyrir kaupendur eða seljendur. Við veitum faglega og skýra ráðgjöf við mat á réttarstöðu aðila vegna galla, önnumst sáttaviðræður og aðstoðum með önnur nauðsynleg úrræði til að tryggja hagsmuni okkar viðskiptavina.