Ef í ljós kemur að fasteign er haldin galla kann kaupandi eftir atvikum að geta beitt eftirfarandi vanefndaúrræðum gagnvart seljanda til að gæta sinna hagsmuna.

Hvaða leið er líklegust til árangurs fer eftir aðstæðum í hverju máli. Við greinum réttarstöðu þína og ráðleggjum með næstu skref.

  1. Krefjast úrbóta

    Í sumum tilvikum getur kaupandi átt rétt til að krefjast þess að seljandi bæti úr gallanum á sinn kostnað innan hæfilegs tíma.
    ATH: Ef kaupandi hyggst bera fyrir sig galla er mikilvægt að tryggð sé sönnun um umfang og orsök gallans áður en ráðist er í úrbætur þar sem sönnunarbyrðin um tilvist gallans hvílir á kaupanda. Mikil hætta er á að sönnun takist ekki sé búið að lagfæra gallann.

  2. Afsláttur

    Algengasta úrræði kaupanda vegna galla í fasteign er að krefjast afsláttar af kaupverði sem samsvarar kostnaði við úrbætur eða verðmætarýrnun fasteignarinnar vegna gallans. Beiting þessa úrræðis er mjög algengt þar sem ágallar eru fyrir hendi en ekki nægilega mikilir til að réttlæta riftun

  3. Skaðabætur

    Að ákveðnum skilyrðum uppfylltum getur kaupandi átt rétt til skaðabóta úr hendi seljanda vegna kostnaðar við úrbætur og jafnvel óbeins tjóns eins og leigukostnaðar ef galla/tjón má rekja til saknæmrar háttsemi seljanda.

  4. Riftun

    Í alvarlegustu tilvikum, þegar fasteignagalli er verulegur og/eða ef seljandi hefur sýnt af sér saknæma háttsemi svo sem með því að veita rangar upplýsingar um fasteignina eða vanrækja upplýsingaskyldu sína, getur kaupandi átt rétt til að rifta kaupunum.

  5. Halda eftir greiðslu

    Kaupandi getur haldið eftir hluta kaupverðsins ef hann telur sig eiga réttmæta kröfu vegna ágalla í fasteign. Þetta er í raun bráðabirgðaúrræði sem er ætlað að tryggja kröfu kaupanda þar til endanleg lausn finnst vegna ágallans. Því er beitt til að knýja seljanda til að uppfylla skyldur sínar með því að laga gallann, greiða skaðabætur eða veita afslátt af kaupverðinu.
    Að halda eftir greiðslu er alltaf á áhættu kaupanda.  Haldi hann eftir hærri fjárhæð en tilefni er til er líklegt að dráttarvextir falli á þann hluta sem umfram er. Getur það einkum reynst óheppilegt ef fasteignin er á endanum talin ekki vera haldin slíkum galla að það veiti kaupanda rétt til beitingu vanefndaúrræða.

Svar við því hvort fasteign sé haldin galla í skilningi laga sem seljandi ber ábyrgð á ræðst af heildarmati ýmissa þátta eins og eðli og umfangi gallans, atvikum í aðdraganda kaupa og upplýsingum sem seljandi veitti kaupanda um fasteignina.

Almenna reglan er sú að notuð fasteign geti aðeins talist gölluð að kostnaður við úrbætur gallans nemi að lágmarki 10% af kaupverði hennar þannig að svokölluðum gallaþröskuldi sé náð. Minniháttar frávik í gæðum og eðlilegt slit á notaðri fasteign eru því ekki ágalli samkvæmt reglum fasteignakauparéttar sem veitir rétt til vanefndaúrræða.

Lesa meira

Ef í ljós kemur að fasteign er haldin galla kann kaupandi eftir atvikum að geta beitt eftirfarandi vanefndaúrræðum gagnvart seljanda til að gæta sinna hagsmuna.

Hvaða leið er líklegust til árangurs fer eftir aðstæðum í hverju máli. Við greinum réttarstöðu þína og ráðleggjum með næstu skref.

Lesa meira

Hafa þarf í huga að strangar reglur gilda um tilkynningarskyldu, tímafresti og fyrningu krafna í gallamálum. Ef í ljós kemur að fasteign er haldin ágalla er mjög mikilvægt að kaupandi tilkynni seljanda skriflega um gallann við fyrsta tækifæri. Samkvæmt lögum um fasteignakaup ber að senda tilkynningu um galla innan sanngjarns frests frá því kaupandi varð hans var, en sá frestur spannar aðeins nokkra mánuði miðað við dómaframkvæmd. Verði misbrestur á þessu getur kaupandi glatað rétti til að bera gallann fyrir sig sökum tómlætis.

Lesa meira

Í gegnum árin sjáum við reglulega sömu mistökin í fasteignagallamálum sem torvelda stöðu kaupenda. Með þeim algengari sem ber að varast eru:

Lesa meira

Hvernig aðstoðum við þig?

Fasteignagallamál eru oftast flókin og krefjast faglegrar meðferðar frá upphafi. LOCAL lögmenn hafa mikla reynslu af úrlausn mála sem snerta galla í fasteignum, hvort sem er fyrir kaupendur eða seljendur. Við veitum faglega og skýra ráðgjöf við mat á réttarstöðu aðila vegna galla, önnumst sáttaviðræður og aðstoðum með önnur nauðsynleg úrræði til að tryggja hagsmuni okkar viðskiptavina.